tag:blogger.com,1999:blog-25058474778361316612024-03-05T02:44:58.355-08:00Nýjar setningarKarihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.comBlogger13125tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-3589039004984817362017-09-01T01:14:00.001-07:002018-07-22T05:13:45.532-07:00Lissabon sumarið 2017

Ykkur finnst túrisminn kannski slæmur í Reykjavík, en ég get lofað að hann er verri í Lissabon. Eftir kreppuna (sem var ekki löndunum á jaðri Evrópu að kenna sama hvað hver segir) hefur Portúgal orðið háðara túrisma en áður, ásamt því að margir ferðamenn sem áður hefðu farið til Marokkó, Túnis eða Alsírs flykkjast nú til litla landsins yst á Íberíuskaga til að upplifa þar einhvers konar "exótík" sem þeim finnst sambærileg við Norður-Afríku en eiga síður á hættu að vera drepnir í hryðjuverkaárás. En munurinn á borgunum tveimur er að Reykjavík var frekar ömurleg fyrir, grá, niðurdrepandi og svo takmörkuð af borg að vera, að minnsta kosti síðan ég flutti þangað fyrst í byrjun aldarinnar. Lissabon, hinsvegar, hafði og hefur enn upp á ansi margt að bjóða. Nú er ferðamannaiðnaðurinn að plægja sig í gegnum gamalgróna borgarhluta og setja lífsmynstur íbúanna þar úr skorðum. Breytingin síðan ég kom þangað fyrst fyrir sjö árum er mjög áberandi.

Hvað um það. Af því að ég veit að margir Íslendingar hafa sótt Lissabon heim og að þeim á eftir að fjölga, þá datt mér í hug að taka saman fáein atriði, aðallega varðandi mat og söfn, sem gætu reynst gagnleg, til að hafa í huga í ferðinni í þeirri von að þau stuðli að betri upplifun fyrir alla, bæði gesti og heimamenn.

Matur:

Á skömmum tíma hefur sprottið upp sægur af dýrum og flottum veitingastöðum. Eins og alls staðar þar sem túrismasprengja springur er erfitt að fylgjast með þeirri senu, hafa yfirsýn. Sjálfsagt eru einhverjir af þessum nýju, fínu stöðum góðir, ég þekki það ekki.

En ég mæli frekar með að prófa fábrotna, hversdagslega veitingastaði sem kallast tascas, þar sem serveraður er venjulegur portúgalskur heimilismatur fyrir lítinn pening. Til dæmis alls kyns hrísgrjónaréttir þar sem uppistaðan getur verið túnfiskur, kjúklingur, kolkrabbi og ýmislegt fleira. Eða caldo verde, sem er hin dæmigerða grænmetissúpa, holl, góð og ódýr. Eða ýmsir steiktir smáréttir, snarl í rauninni, sem sameiginlega kallast salgados, til dæmis pasteis de bacalhau (fiskibollur úr þorski) eða rissois (rækjugóðgæti). Eða torrada, sem er tæknilega séð bara ristað brauð með smjöri, en það segir bara hálfa söguna því þetta er stór sneið af almennilegu brauði, ekki einhverju samlokubrauði úr Bónus, og vel tilreidd, vel ristuð og með hæfilega miklu bræddu smjöri. Eða tosta mista, sem er í raun bara grilluð samloka með osti og skinku, en aftur er þar bara hálf sagan sögð.

Ef mann langar í skyndibita þá mæli ég - frekar en að skipta við McDonalds eða einhverja ámóta viðbjóðslega bandaríska keðju - með því að skjótast inn á næsta venjulega "kaffihús", næsta tasca, og panta þar dæmigerða steikarsamloku, annað hvort bifana (svínakjöt) eða prego (nautakjöt), sem kostar kannski tvær evrur og fimmtíu. Jafnvel salla í sig einum imperial með, þótt portúgalskur bjór þyki almennt ekki upp á marga fiska (reyndar er handverksölið líka komið hingað). En persónulega finnst mér nú hálf ankannalegt að koma hingað til að fá sér bjór. Þetta er vínland. Það er hvort eð er hægt að drekka bjór og borða pítsur alls staðar - hví þá að koma hingað til þess?

Margir kannast við pasteis de nata, litlu gulu kökurnar sem eru orðnar álíka mikil klisja og íslenski harðfiskurinn. En málið með þessar kökur er að þær eru svo fullar af eggjum - eins og reyndar flest portúgalskt bakkelsi - að þær seðja hungrið furðu lengi og ættu ekki að kosta nema svona 90 sent eða eina evru.

Allt ofantalið er hlægilega ódýrt, eða á að vera það, og á svona löguðu er hægt að komast af ef maður er knappur með klinkið, allavega í svolítinn tíma.

Reynið að fara á staði þar sem kaffibollinn (espressó) kostar ekki nema 60 til 65 sent. Það er eðlilega verðið og kaffið er afbragðs gott. Í gegnum tengsl við gömlu nýlendurnar hafa portúgalskir kaffiframleiðendur þróað frábærar blöndur, svolítið af sterka bragðinu frá Angóla, svolítið af sæta bragðinu frá Tímor og svo framvegis. Almennt eru kaffi, ólífuolía og vín héðan alveg fyrsta flokks.

Ávextirnir geta verið alveg guðdómlegir. Engin furða að arabíska orðið yfir appelsínu er náskylt landaheitinu Portúgal.

Og að sjálfsögðu á maður að borða fisk. Ekki láta eins og engilsaxneskir villimenn sem éta bara steikur og hamborgara. Prófið einhverjar af þeim skrilljón saltfiskuppskriftum sem til eru í þessu landi. Troðið í ykkur saltfiski, eftir því sem mér skilst er hvort eð er auðveldara að kaupa þorsk frá til dæmis Grindavík í Lissabon heldur en í Grindavík. Og hér hjá mestu fiskinnflutningsþjóð Evrópu er hann í góðum höndum, hjá fólki sem kann í alvöru að elda hann. Hvernig haldið þið að nokkur kúltúr geti orðið til í kringum þessa afurð ef hún er öll bara flutt út jafnharðan og hún veiðist? Borðið ferskar sardínur, lærið kúnstina við að fjarlægja roðið og ná kjötinu af beinunum án þess að kremja það, ekki flaska á að setja sardínurnar ofan á brauðið eina af annari og borða svo brauðið síðast, gegnsósa af sardínufitu. Og ekki bíða of lengi með það því Evrópusambandið er að hóta að leggja bann við sardínuveiðum. Ekki vera feimin við að snæða sem flestar furðuskepnur úr hafinu, ef þær eru ferskar, og skolið þeim niður með vinho verde, "græna" víninu. Ég skal mæla með að minnsta kosti einum stað til þess arna: Barcabela heitir hann, uppi á Avenida Almirante Reis, nálægt Intendente.

Í sumar tók ég eftir að í miðborginni, í hverfunum Baixa, Chiado og víðar, eru komnar einhverjar glansbúðir sem selja túnfisk, sardínur og annað sjávarfang í dósum. Nú er portúgalskur dósafiskur vissulega almennt mjög góður, margfalt, margfalt betri en Ora-ruslið sem íslendingar virðast gera sér að góðu. En staðreyndin er samt sú að í Portúgal er hægt að fara út í næstu kjörbúð og kaupa svona dósavöru sem er alveg jafn góð og í glansbúðunum en miklu ódýrari, þótt umbúðirnar séu ef til vill ekki jafn fínar.

Söfn:

Jarðfræðisafnið í hverfinu Princípe Real er frábært. Safnið sjálft er líka áhugavert sögulega séð, að því leyti að það er eins og söfn voru á 19. öld.

Museu do Aljube er nýtt safn og - að mér skilst - það fyrsta í landinu sem er helgað einræðistímanum (fyrir þá sem ekki vita var Portúgal í klóm fasismans næstum hálfa 20. öldina). Sjálf byggingin, Aljube, var áratugum saman notuð til að geyma pólitíska fanga. Safnið sjálft er kannski dálítið ruglingslega upp sett, sérstaklega ef maður er ekki kunnugur þessari sögu, en samt sem áður er þetta saga sem allir ættu að kynna sér.

Museu do Oriente. Flennistórt og metnaðarfullt safn úti í Alcântara, helgað menningu Austurlanda fjær, í tilefni af mikilli nærveru Portúgala í Asíu á nýlendutímanum. Tvímælalaust eitt besta safnið í borginni. Frítt inn á föstudagskvöldum eftir kl. 18.

Museu Calouste Gulbenkian er án vafa besta listasafn í borginni, jafnvel í öllu landinu. Byggingin sjálf er líka með þeim fallegri og umhverfis það er stór og yndislegur lystigarður, öllum opinn, þar sem gott er að slappa af í góða veðrinu. Ekki klikka á að fara í Gulbenkian. Frítt inn á sunnudögum eftir kl. 14.

Í síðustu árum hefur listagalleríum fjölgað talsvert. Ég myndi til dæmis líta við í einu litlu galleríi sem heitir Mandragoa, í hverfinu Santos.

Skammt frá Mandragoa, í hverfinu São Bento, er Atelier-Museu Júlio Pomar, nefnt í höfuðið á samnefndum listamanni sem er hátt skrifaður í Portúgal en lítt þekktur utan landsteinanna. Fallegt, lítið safn (kannski af svipaðri stærð og Ásmundarsafn) sem er ekki á allra vitorði.

Rétt hjá Largo do Rato, við Jardim das Amoreiras fyrir aftan 18. aldar vatnsþróna er safn helgað listakonunni Vieira da Silva, þeim portúgalska myndlistarmanni sem notið hefur mestrar alþjóðlegrar velgengni hingað til (hugsanlega fyrir utan Paulu Rego). Mjög fínt safn og vel þess virði að heimsækja.

Úti í hverfinu Belém, þar sem er allt krökkt af söfnum og minnisvörðum, er nú búið að opna nýtt nýlistasafn sem heitir MAAT. Mér finnst ekki ennþá liggja fyrir hverju það bætir við, eða hvað það gerir sem Centro Cultural de Belém eða CCB, risastór menningarmiðstöð sem er þarna rétt hjá, gæti ekki alveg eins gert. Kannski er þetta dæmi um þann gamalkunna tendens hjá stjórnmálamönnum að vilja alltaf byggja ný hús, eyða peningunum í steypu, frekar en að nota þá bara til að gera góðar sýningar í því húsnæði sem fyrir er. Eða kannski var ákveðið að byggja þetta í von um "Bilbao-áhrif" eins og sumir kalla það, með vísun í Guggenheim-safnið sem Frank Gehry hannaði fyrir Bilbao á Spáni og margfaldaði ferðamannastrauminn til þeirrar borgar.

Í öllu falli er alltaf hægt að bregða sér á Rafmagnssafnið, gamalt orkuver sem var breytt í ágætt iðnaðar- eða tæknisafn og er hluti af MAAT, sem þýðir að myndlist er líka til sýnis þar. Í evrópsku skuldakreppunni, þegar Evrópusambandið neyddi PIGS-ríkin svokölluðu til að einkavæða sem mest, seldi portúgalska ríkið Kínverjum hlut sinn í opinbera orkufyrirtækinu. Ef þú, lesandi góður, leggur leið þína á þetta safn þá þarf þig ekki að undra ef það vill svo til að þar sé stór sýning einhvers kínversks listamanns ...

Það er frítt inn á öll söfn á vegum hins opinbera á sunnudögum til kl. 14. Þetta gildir hinsvegar ekki um sjálfstæð söfn, t.d. Gulbenkian. Það borgar sig alltaf að gúggla hvert það safn sem mann langar að heimsækja til að ganga úr skugga um þetta atriði.

Annað:

Lítið við í litlu bókabúðinni Fabula Urbis, hjá dómkirkjunni Sé. Það er búð sem sérhæfir sig í bókum sem tengjast Lissabon eða Portúgal á einhvern hátt og hefur tekist að safna saman ýmsum áhugaverðum titlum, líka á ensku, frönsku, þýsku, spænsku og ítölsku. Fljótt fljótt, áður en hún fer á hausinn og þarf að víkja fyrir minjagripabúð.

Svo eru auðvitað ýmsir aðrir staðir sem ég hef mætur á, litlir staðir, jafnvel staðir þar sem fólk með alls kyns meiningar kemur saman. En það er ekki séns að ég kjafti frá þeim á einhverri bloggsíðu.

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-71382266022883678042016-03-01T04:28:00.004-08:002016-03-01T04:28:41.845-08:00Viðtal - Druslubækur og doðrantar.Er hér.Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-79726349784274226612015-10-19T02:10:00.000-07:002015-10-19T08:40:21.651-07:00Ekkert tekur enda

Kæru lesendur, ég kynni með stolti nýju ljóðabókina Ekkert tekur enda. Útgefandi er hið splunkunýja grasrótarforlag Deigma.

Bókin er nú fáanleg í forsölu á kr. 2500 og eru sendingarkostnaður og rafbók (.epub eða .pdf) innifalin. Vinsamlegast sendið einfaldlega tölvupóst á kari.pall.oskarsson@gmail.com til að panta eintak, og við komum því til ykkar strax að prentun lokinni.

Kynningartexti eftir Olaf Lilian (promotional text - English version below):

Titill nýjustu
ljóðabókar Kára Páls Óskarssonar er ergjandi að sama skapi og hann vekur innsæi
okkar. Við hrópum með honum: Ekkert tekur
enda. Allt heldur áfram, orsakasambönd og leiðingar skilja eftir sig óljós
spor í öllu sem þau koma nálægt, hverfa aldrei alveg, eins og stríðið í
Afganistan, hvað svo sem herská ríkisstjórnin kýs að fullyrða framan í
hungraðar myndavélar. Huggandi popplagið sem lekur úr kreditlista
Hollywood-pillu er bara gervilausn. Orð flýja af blaðsíðum bókar að neyslu
lokinni og geta af sér nýja veruleika af áfergju. Það er enginn endir í
sjónmáli því endurtekning mengar sjóndeildarhring okkar. Nietzsche var afar
meðvitaður um þversagnarkennda margræðni endurtekningar,
eða hins „kosmíska hjóls“ eilífrar endurkomu; allt frá nauðhyggjulegum frumspekipælingum
til kæfandi lágkúru hversdagssálfræðinnar. Mun alheimurinn á endanum falla
saman í sína eigin spegilmynd? Getur stök hugveran haldið áfram að streitast á
móti harmrænni endurkomunni og staðið af sér endurupplifun sérhvers augnabliks?
Ljóð Kára gefa í skyn annars konar endurtekningu, handan amor fati, sem snýr við ákallinu eftir einstaklingsbundinni uppgjöf.
Hér afhjúpa orðin stanslausan gnýinn úr vél kerfisins (þess efnahagslega jafnt
sem táknræna) sem umvefur okkur og lagar að sér sérhvert form frelsisbaráttu og
stráir tómum táknmyndum yfir sjóndeildarhringinn, eða eins og Kári vitnar í: „Við
lifum í tungumálinu eins og í menguðu lofti“. Hugmyndafræði auðmagnsins
endurtekur sig út í hvern krók og kima verundarinnar og gerir fjarlægustu
orðræðusvið að nýlendum sínum. Innihaldið virðist breytast en hið endanlega
form er ávallt hið sama. Endalok sögunnar marka endalausa endurtekningu kapítalsins og tungumálið verður dyggur þjónn þess. Fyrir Kára bera orð samhengi
sitt, ef við fáumst til að sjá þetta með réttum augum og ástunda okkar form af
uppreisnar-túlkunarfræði. Tungumálið er okkar; líkamar okkar og sameiginlegur
andardráttur. Slitin úr tengslum við þetta verða orð eins og hverjir aðrir
hlutir, skordýr sem skjótast til og frá, og yfirþyrmandi en merkingarlaus
hávaði. Og við erum gegndrepa í þeim óteljandi fjölmiðlunarformum sem móta
orðræðu okkar. Tungumálið verður að einhverju í líkingu við hið yfirgefna
sjónvarpstæki Baudrillard sem „afhjúpar hvað það er í raun: myndbandsupptaka af
öðrum heimi, ekki nokkrum manni ætluð, sem dreifir myndum sínum af
skeytingarleysi, skeytingarlaus um eigin skilaboð.“ Vélrænt píp orðanna, strípaðra
niður í 1 og 0, er sannarlega ekki þessa heims, og við snúum höfðinu út í geim
og endurtökum hljóðbútana í von um að enginn heyri undirliggjandi villurnar í
útsendingunni. Og í því leynist byltingargeta ljóðlistar. Kári grefur
kerfisbundið undan ráðandi orðræðum og lætur þeim blæða út á blaðsíðunum. Um
leið sjáum við glitta í hvernig við getum endurheimt það sem alltaf tilheyrði
okkur. Í stuttu máli skilar ljóðskáldið tungumálinu aftur til okkar. Kominn er
tími til að stöðva mars tómleikans. Aðeins þá getur ekkert tekið enda.

Ég fyrirlít rykið

sem mótar mig

og ávarpar þig

The title of Kári Óskarsson’s new book of radical poetry is as vexing as it is intuitively poignant. With him, we confidently bellow, Nothing ends. Everything continues, causalities and implications leave obscure traces in everything they touch, never properly ceasing, like the Afghan war, whatever the belligerent administration likes to claim in front of hungry cameras. The comforting pop-tune oozing from the end credits of a Hollywood pill, is only an artificial resolution. Words evacuate the pages of a consumed book and fervently breed new realities in different vessels. There is no end in sight because repetition pollutes our horizon. Nietzsche was acutely aware of the paradoxical conceptual extension of repetition, or the “cosmic wheel” of the eternal recurrence; from its deterministic metaphysical speculations to the stifling banalities of everyday psychology. Will the universe eventually fold into its own mirror? Can the solitary subject remain resilient in face of the tragic return and endure reliving every moment? Kári’s poems suggest another repetition, beyond amor fati, reversing the call for individual resignation. Here, the words reveal to us the unceasing clamouring engine of the system (from economic to symbolic) in which we find ourselves, which appropriates every form of emancipatory action and representation. Rendering the contaminated horizon geometrically horizontal and littered with empty signifiers, as Kári cites: “we live in language like polluted air.” Capital’s ideology repeats itself in every corner of Being and colonises the remotest regions of discourse. The content seems to change, but the ultimate form remains the same. The end of history marks the endless repetition of capital, and language becomes its unwavering servant. For Kári, words carry their context, if we’re willing to see this with the right kind of eyes, and practice our inherent form of rebel-hermeneutics. Language is ours; our bodies and common breath. Alienated from this, words become indifferent things, mindless objects, scurrying insects, and overbearing yet meaningless noise. And we are drenched in the countless forms of media through which our discourse is shaped. Language becomes something like Baudrillard’s abandoned TV set that “… reveals itself for what it really is: a video of another world, ultimately addressed to no one at all, delivering its images indifferently, indifferent to its own messages.” The mechanic bleeping of words, stripped to 1’s and 0-s, are truly other-worldly, and we direct our heads to space and repeat the soundbites in the hope that no one will hear the underlying errors in the transmission. And herein lies the revolutionary potential of poetry. Kári systematically undercuts the dominant discourses, and leaves them bleeding on the pages. Simultaneously offering us a glimpse of how we can re-appropriate what was always already ours. In the last analysis, the poet returns language to us. It’s time to end the hegemonic march of emptiness. Only then can nothing end.

I despise the dust

that shapes me

and calls for you

– Olaf Lilian

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-90713400124441981442014-11-16T13:10:00.000-08:002014-11-16T13:11:34.981-08:00Einræður Starkaðar N+7Með smá skáldaleyfi - það taka sér allir sannir Oulipistar.

Vermandi ljóðskáld

Eitt brotthlaup – getur dingli í dáhrif breytt,

sem drottinsaftan breytir veilu heils skáldskapar.

Þemba getur snúist við attaníoss einn.

Aðhald skal haft í næturgagni salats.

Svo oft leyndist stríðsáróður í brjóstbirtu sem brast

við biturt andvirði, gefið án söluskatts.

Hve iðrar margt líferni einn augnakvilla,

sem aldrei verður tekinn til baka.

Einn hreysiköttur, einn orðafjöldi – og á örtölvu stundarbið

örnafna vorra grúfu vér leggjum;

á óvæntum, hverfulum farandsala,

við flipa og kertastjaka, hjá hlustandi vegleysum.

Hvað vitum vér magakannar? Eitt vermandi ljóðskáld,

ein veila, ber vort líferni undir tæmdu dreifibréfi.

– Hvað vill sá sem ræður?

Voldugt og hljótt reis verknaðar sólarfall yfir múrlímsins vegleysum.Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-77964657225123833282014-09-19T06:32:00.001-07:002014-09-19T06:32:18.303-07:00Antonin Artaud: Öll skrif eru ruslÖll skrif eru rusl.

Fólk sem dúkkar upp og reynir að koma orðum að einhverjum hluta þess sem gengur á í höfðinu á þeim er svín.

Öll bókmenntasenan er svínastía, sérstaklega nú til dags.

Allir þeir sem hafa kennileyti í huganum, ég á við á vissri hlið höfuðsins, á vel afmörkuðum stöðum í heilabúum sínum, allir þeir sem eru meistarar síns tungumáls, allir þeir sem finnst orð hafa merkingu, allir þeir sem telja að sálin eigi sér æðri svið og hugsunin strauma, þeir sem eru fulltrúar tíðarandans og sem hafa gefið hugmyndastraumunum nöfn, ég er að hugsa um vandvirkni þeirra og þjarkalegt ískrið sem hugar þeirra senda í allar áttir,

— eru svín.

Þeir sem finnst tiltekin orð hafa merkingu og tiltekna veruhætti, þeir sem eru svo nákvæmir, þeir sem láta eins og hægt sé að flokka tilfinningar og þrátta um einhver atriði í sprenghlægilegum flokkunum sínum, þeir sem enn trúa á „hugtök“, þeir sem grufla í helstu hugmyndafræðum sem sett hafa svip á samtímann, þeir sem konur ræða svo gáfulega og líka konurnar sjálfar sem eru svo vel máli farnar og ræða strauma samtímans, þeir sem enn trúa á stefnumörkun hugans, þeir sem fara troðnar slóðir, sem slá um sig með nöfnum, sem básúna ágæti blaðsíðna og bóka,

— þetta eru allra verstu svínin.

Þú ert alveg óþarfur, ungi maður!

Nei, ég hef í huga skeggjaða gagnrýnendur.

Og ég var búinn að segja ykkur þetta: engin verk, ekkert tungumál, engin orð, enginn hugur, ekkert.

Ekkert nema góð taugavog.

Nokkurs konar óskiljanleg stoppistöð, einmitt í miðpunkti alls í huganum.

Og ekki búast við að ég segi ykkur hvað þetta allt heitir, að ég segi ykkur í hve marga hluta það skiptist, að ég segi ykkur hve þungt það er, að ég spili með, að ég fáist til að ræða það og að ég gleymi mér á meðan ég væri að ræða það og byrjaði þar með óafvitandi að HUGSA — og að það upplýsist, að það lifni við, að það skrýðist fjöldamörgum orðum, öllum vel fægðum að merkingu, öllum frábrugðnum og færum um að tjá allar afstöður, öll blæbrigði mjög næmrar og skarprar hugsunar.

Æ, þessi ástönd sem aldrei eru nefnd, þessar mikilsháttar stöður sálarinnar, æ, þessi millibil hugarins, æ, þessar litlu mislukkur sem eru daglegt brauð ævi minnar, æ, þessi landslýður sem iðar af staðreyndum — ég nota alltaf sömu orðin og hugsun mín virðist ekki þokast neitt fram á við, en í rauninni fer mér meira fram en ykkur, skeggjuðu asnar, skynsömu svín, meistarar hins falska orðs, hroðvirku portrettistar, framhaldssagnahöfundar, jarðbundnu nautgriparæktendur, skordýrafræðingar, plága ræðu minnar.

Ég sagði ykkur að ég hefði misst málið, en það er engin ástæða fyrir ykkur að þrjóskast við að tala.

Nóg um það, eftir tíu ár verð ég skilinn af fólki sem gerir það sama og þið gerið í dag. Þá verða goshverir mínir þekktir, ísjakar mínir sýnilegir, menn munu hafa lært að þynna út eitur mitt og uppgötvað leiki sálar minnar.

Þá verða öll mín hár, allar æðar sálarlífs míns sokknar í kalk, dýratalið mitt mun liggja fyrir allra augum og dulúð mín verður orðin að hatti. Þá mun gefa að líta hvernig rýkur úr samskeytum steina og greinóttir vendir úr augum hugans kristallast í orðaskrár, síðan munu sjást hrapandi loftsteinar, síðan reipi, síðan munu menn skilja þrívíddarlausa rúmfræði, og læra hvað átt er við með lögun hugans, og skilja hvernig ég varð hugstola.

Þá munu menn skilja hvers vegna ég varð viðskila við hug minn, þá munu menn sjá allt tungumál þorna upp, alla huga skrælna, allar tungur skorpna, andlit mannanna fletjast út og loftið yfirgefa þau eins og það væri sogið út um þurrkandi sogblöðkur, og þessi smurða himna halda áfram að svífa um í lausu lofti, þessi smurða ætandi himna, þessi tvíþykka, marglaga himna með óteljandi sprungum, þessi dapurlega og líflausa himna sem samt er svo næm, svo skynsöm, svo fær um að fjölga sér, skipta sér, snúa sér svo glampar á sprungurnar, skilningarvitin, vímugjafana, djúpar og eitraðar áveiturnar,

þá mun allt þetta vera álitið gott,

og ég mun ekki framar þurfa orð að mæla.

Antonin Artaud,
Úr Taugavoginni (Le Pèse-Nerfs), 1925

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-57694165180398272242014-07-30T09:48:00.000-07:002014-07-30T09:48:18.394-07:00CaveatVarðandi ljóðið í síðustu færslu: Þannig er að vefritið Starafugl óskaði eftir ljóðum úr öllum áttum til að gefa út á bók, sem heitir Viljaverk í Palestínu og var ætlað að vekja athygli á neyðarsöfnun félagsins Ísland-Palestína. Gott framtak sem gaman hefði verið að taka þátt í, en vegna annríkis, netleysis og einhverrar vanmáttarkenndar gagnvart verkefninu féll ég á tíma og náði ekki að senda neitt inn. Þannig að þetta ljóð er hálfgerður bastarður. En ég vil líka benda á neyðarsöfnunina:

Reikningur: 0542-26-6990

Kt. 520188-1349

Skýring greiðslu:

Neyðaraðstoð við Palestínu

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-80799891088311329022014-07-27T03:49:00.000-07:002014-07-27T03:49:17.469-07:00Göng til Gaza

Ég hafði verið að brjóta heilann um afstöðuljóðlist, um hverju hún áorkar, hvort hún áorkar nokkru yfirhöfuð og þá hvernig. Vegna Palestínu, aftur. Svörin virðast yfirleitt þau sömu: litlu, varla og góð spurning. Ég held að minnsta kosti að fullyrða megi að ákveðin tegund hennar virki ekki, sé strand, ef ekki dauð, nema þegar hún sé eftir fólkið sem verður fyrir misréttinu, í þessu tilviki Palestínumenn. En hvað ber að gera? Og hvað er afstaða? Ef marka má skáldin virðist það vera eitthvað á borð við „morð eru vond“. Ég er ekki með svör en ég held að í ljóðlist þurfi að láta tungumálið sjálft einhvern veginn líkja eftir því sem ljóðið er 'um', að form sé innihald og innihald form, án þess að hafa nákvæma útlistun á því, ekki ætla ég að segja fólki hvernig það eigi að yrkja, né er þessum texta heldur ætlað að vera dæmi um slíkt, en hvernig getur tungumálið líkt eftir svona hryllingi? Þarna komum við kannski aftur að þessu með að „segja hið ósegjanlega“. Markmiðið er kannski ekki endilega að ljóðin sjálf séu eins og heimagerðar eldflaugar, heldur frekar að Hamas leynist bakvið sérhvert orð, ef það meikar sens. Þetta allt hélt fyrir mér vöku. Ég ætlaði í sturtu en þá sprautaðist bara blóð úr sturtuhausnum. Ég ætlaði að fá mér morgunmat en þá var kornflexpakkinn fullur af muldum höfuðskeljum. Ég fór út en þá var risinn múr beint fyrir framan húsið mitt, örugglega þúsund metra hár. Loftveginn komu steikingasveimarar. Þetta síðasta var vísun í afstöðuljóð sem virkar. En þá las ég frétt um að Ísraelsher hefði uppgötvað flókið kerfi neðanjarðarganga undir Gaza. Samkvæmt heimildum teygja þau anga sína alla leið til Svalbarða. Vel grafið, gamla moldvarpa! Þetta síðasta var Marx, að tala í gegnum Sigfús. Ég er farinn að grafa. Ég ætla að grafa mér göng til Gaza. Ég gref og gref. Ég tek með mér eitthvað af orðum innvortis, ég veit ekki hve mikinn tíma það mun taka, en vona að þegar ég rek hausinn upp úr jörðinni í Zaytoun eða Toffah, í Rafah eða Khan Younis, eða upp úr gólfinu í Al-Aqsa sjúkrahúsinu, eða rústum einhvers heimilis eða skóla, þá muni ég hver þau voru.Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-53189042926493707582014-07-08T11:40:00.001-07:002014-07-08T11:40:38.918-07:00Sternberg: Úr Þunglyndisljóðum

allt
verður bara verra

maður
getur leyft sér

að
vona

en

allt
verður bara verra

sama
hvað ég geri

veldur
útkoman

vonbrigðum

þetta er bratti

að klifra upp í mót

krefst mikillar áreynslu

og allir sem reyna

hrapa

eftir svolitla stund

niður

ég veit ekki

hvort aðrir

vita

hvenær

afturförin hófst

eins og steinn í skónum

bara að ég ætti

skó sem rúmuðu stein

það eru stór

göt í öllu

það er engin leið að segja

hversu
lengi

þetta
kemur

til
með að vara

ég
get bara fullyrt

að
það mun ekki skána

þegar við ekki erum

jörðuð hvort í annars örmum

stöndum við alveg kyrr

við hlið hvors annars

líkami minn er duftker

líkami þinn er duftker

skiljanlega eigum við ekki mök

hvernig

hnignun

hvers og eins

mun þróast

má lesa

í andlitinu

meira og meira

sinnuleysi í svipnum

þannig

að færri og færri

athafnir

eiga sér stað

ég reyni

að læra eitthvað nýtt

en það eina sem gerist

er að ég uppgötva

hve mikið

ég misskildi í gær

ég tala ekki

eins og þú lest mig

ég tala hægt

og þegar einhver

spyr mig

um eitthvað

svara ég bara

með einsatkvæðisorðum

við verðum

lélegri og lélegri

í öllu

færri og færri

geta munað

betri tíð

maður gæti haldið

að það gæti líka talist

af hinu góða

ekki sífellt

að hugsa um

að allt var betra áður fyrr

en það er alltaf

einhver sem grætur

og það minnir mann á

að það er sorglegt

allt verður

meira og meira virði

en

virðið sem það eykst að

verður

minna og minna virði

enginn heldur bókhald

enginn úthlutar nöfnum

enginn ómakar sig

við að greina

Að kalla þessa tíma

erfiða

gerir það léttara

því

maður hugsar

að það vari ekki að eilífu

að það sé ekki

manns eigin sök

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-63953746340378347122014-04-19T22:22:00.000-07:002015-06-29T02:58:57.722-07:00Um Sean BonneyEftirfarandi texti var ritaður að beiðni tímaritsins Stínu og átti að fylgja með þýðingu minni á ljóðinu Letter on Harmony and Sacrifice eftir Sean Bonney. Þar sem hann virðist einhverra hluta vegna ekki hafa ratað í tímaritið set ég hann hér, vonandi einhverjum til fróðleiks, ásamt tengli á upphaflega gerð ljóðsins:

Um Sean Bonney

Skáldið Sean Bonney er fæddur árið 1969 í Brighton og alinn upp í Norður-Englandi. Hann hefur síðar látið hafa eftir sér að uppvöxturinn þar, á valdatíð Margrétar Thatcher og breska íhaldsflokksins með tilheyrandi atvinnuleysi, fátækt o.s.frv. hafi gert sig pólitískan, en pólitík er óaðskiljanlegur hluti af ljóðlist hans. Sjálfur kallar hann sig byltingarsinnaðan sósíalista. Í upphafi skáldferils síns var hann vanur að koma fram á pönktónleikum í heimabyggð sinni, á milli þess sem hljómsveitirnar stilltu upp búnaði sínum, og reyndi þá að flytja ljóð sín af engu minni krafti en tónlistarmennirnir pönkið. Má heyra þess merki í upplestrum hans allt til þessa dags. Síðar flutti hann til London, þar sem hann hefur búið síðan, og komst þar í kynni við verk breskra framúrstefnumanna, svo sem Tom Raworth og Bob Cobbing. Hann lauk nýverið doktorsritgerð við Birkbeck, University of London, um ljóðlist bandaríska skáldsins Amiri Baraka.

Bonney hefur sent frá sér margar ljóðabækur, m.a. Baudelaire in English (Veer Books, 2007 og 2011) þar sem hann vinnur með frumlegum hætti úr ljóðum Charles Baudelaire, enduryrkir eða „þýðir“ sum kvæða franska skáldsins á ritvél með þeim hætti að textinn fer allur í belg og biðu, tungumálið er skrumskælt og limlest, svo að útkoman verður nokkurs konar myndljóð, á köflum ólæsileg. Fljótt á litið virðast þau því fátt eiga sameiginlegt með ljóðum Baudelaire, en heimspekingurinn Esther Leslie hefur bent á að þau ríma vel við hugmyndir þýska hugsuðarins Walters Benjamin um þýðingar. Í frægri ritgerð sem nefnist „Verkefni þýðandans“ – og var raunar formálinn að þýðingum Benjamins sjálf á ljóðum Baudelaire – heldur hann því fram að góðar þýðingar miðli ekki upplýsingum, heldur einhverjum dularfyllri merkingarauka sem vex út úr frumverkinu, sem þýðandinn veitir framhaldslíf á öðrum tungumálum og öðrum tímum. Einmitt þetta má segja að Bonney geri: ferji anda ljóða Baudelaires yfir til Lundúna í byrjun 21. aldar, t.d. með því að beita ljóðmálið ofbeldi, teygja það þannig að það rúmi „óskáldlegt“ mál og inntak, rétt eins og Baudelaire gerði við franskt ljóðmál á sinni tíð.

Í bókinni Happiness – Poems After Rimbaud (Unkant, 2011), á Bonney í samræðu við Arthur Rimbaud, sérstaklega tengsl hans við Parísarkommúnuna árið 1871. Hann ræðst þar á klisjurnar sem umlykja Rimbaud og lífshlaup hans og bendir á að hann var pólitískt skáld, líkt og venja er að líta á hann í Frakklandi og víðar (og í því sambandi sakar ekki að rifja upp, að Rimbaud var eftirlætisskáld Bertolts Brecht), en sem virðist gjarnan gleymast í hinum enskumælandi heimi. Bókin hefst á tilvitnun í Prosper-Olivier Lissagaray, sem sjálfur tók þátt í Parísarkommúnunni og var einna fyrstur til að rita sögu hennar: „Þeir sem segja fólkinu goðsagnir af byltingarmönnum, þeir sem skemmta sér við tilfinningasamar sögur, eru jafn miklir glæpamenn og landafræðingur sem teiknar röng kort handa sjófarendum.“

Síðustu misseri hefur Bonney einkum ort prósaljóð, eða bréf eins og hann kallar þau, og birt þau jafnóðum á bloggsíðu sinni, abandonedbuildings.blogspot.com. Ljóðið „Letter on Harmony and Sacrifice“, sem kemur hér á prenti í íslenskri þýðingu, birtist fyrst á þeirri bloggsíðu þann 31. janúar 2012, eða rúmu ári áður en Margrét Thatcher féll frá. Með óeirðunum sem koma fyrir í ljóðinu er átt við uppþot þau sem brutust út víða á Englandi í ágúst 2011, í kjölfar þess að ungur maður, Mark Duggan að nafni, var skotinn til bana af lögreglu í hverfinu Tottenham í London.

Kvikmyndin If.... , sem vísað er til í ljóðinu, er frá árinu 1968 (og rataði í sýningar í Háskólabíói fáeinum árum síðar) og fjallar um nokkra nemendur við virðulegan enskan einkaskóla fyrir millistéttardrengi, sem gera vopnaða byltingu í skólanum. Hún þykir fanga vel uppreisnarandann sem lá í loftinu undir lok 7. áratugarins, enda var henni víða tekið sem árás á ríkjandi öfl. Hún telst nú sígild.

Að lokum má geta þess að íslenskum ljóðaunnendum ætti Bonney ekki að vera með öllu ókunnur, hafandi verið gestur á þriðju alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils í Reykjavík árið 2007.

http://abandonedbuildings.blogspot.de/2012/01/letter-on-harmony-and-sacrifice.html

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-65471668283848245542013-12-21T02:22:00.002-08:002013-12-21T02:27:13.854-08:00Nótt

[Hér á eftir fer sígild smásaga sem ég snaraði að gamni mínu og fannst tilvalið að deila með íslenskum lesendum á stysta degi ársins. Verði ykkur að góðu. Allar ábendingar um villur, brogað málfar o.þ.h. að sjálfsögðu vel þegnar.]

NÓTT

– martröð –

eftir Guy de Maupassant

Ég ann nóttinni heitt. Ég ann henni eins og maður ann landi sínu eða ástkonu sinni, af eðlislægri, djúpri og ósigrandi ástríðu. Ég ann henni með öllum mínum skilningarvitum, með augum mínum sem sjá hana, með þefskyni mínu sem andar henni að sér, með eyrum mínum sem hlusta á þögn hennar, með öllu hörundi mínu sem skuggarnir strjúka. Lævirkjarnir syngja í sólinni, í himinblámanum, í hlýju loftinu, í léttu lofti heiðskýrra morgna. Uglan þýtur um í nóttinni, svartur díll á ferð um svart rýmið, og gefur frá sér sitt hljómmikla og ógnvekjandi óp, glöð, ölvuð af óravíddum sortans.

Dagsbirtan finnst mér íþyngjandi og leiðinleg. Hún er gróf og ágeng. Ég fer á fætur með erfiðismunum, klæði mig máttleysislega, fer út úr húsi með semingi, og hvert skref, hver hreyfing, hver bending, hvert talað orð, hver hugsun þreytir mig eins og ég lyfti þungu fargi.

En þegar sólin gengur til viðar verður allur líkami minn gagntekinn af ruglingslegri gleði. Ég vakna og fer á ið. Eftir því sem skugginn lengist líður mér æ meir eins og öðrum manni, yngri, sterkari, næmari, hamingjusamari. Ég horfi á skuggann þykkna, steypast stóran og mjúkan niður af himnum: hann drekkir borginni eins og þykk og ósnertanleg alda; hann felur, þurrkar út, eyðir litum og formum, tekur hús, lifandi verur og minnismerki í óhlutkenndan faðm sinn.

Á þeim stundum langar mig að hrópa af ánægju eins og uglurnar, að hlaupa um húsþökin eins og kettirnir; og hvatvísleg, óslökkvandi ástarþrá blossar upp í æðum mínum.

Ég legg af stað, ég geng, stundum um myrkvuð úthverfin, stundum um skógana á jaðri Parísar, þar sem ég heyri ráfa um systur mínar skepnurnar og bræður mína veiðiþjófana.

Það sem við unnum ákaflega drepur okkur öll á endanum. En hvernig get ég útskýrt það sem kom fyrir mig? Hvernig gæti ég yfir höfuð gefið til kynna að ég gæti sagt frá því? Ég veit það ekki, ég veit ekki meir, ég veit það eitt að svona var það. – Það er allt og sumt.

Sem sagt, í gær – var það í gær? – já, það hlýtur að vera, nema það hafi verið fyrr, á öðrum degi, í öðrum mánuði, á öðru ári, – ég veit það ekki. Samt hlýtur það að hafa verið í gær, úr því að það hefur ekki dagað aftur, úr því að sólin hefur ekki risið aftur. En síðan hvenær hefur verið nótt? Síðan hvenær? ... Hver getur sagt til um það? Hver mun nokkurn tíma vita það?

Hvað um það, í gær fór ég út úr húsi eins og ég geri á hverju kvöldi, eftir kvöldverð. Það var mjög milt og hlýtt í veðri. Er ég fór niður í átt að breiðstrætunum leit ég upp á svart og sindrandi stjörnuhafið yfir höfði mínu, skorið sundur af húsþökunum við götuna, sem létu þennan læk af himintunglum virðast ganga í bylgjum líkt og hann væri raunveruleg, rennandi elfur.

Allt sást greinilega í tæru loftinu, pláneturnar jafnt sem gasluktirnar. Svo margir eldar brunnu þarna uppi og í borginni að sjálfir skuggarnir virtust bjartir. Bjartar nætur eru glaðlegri en sólríkir dagar.

Á breiðstrætinu sindruðu kaffihúsin af hlátri, umgangi og drykkju. Ég brá mér inn í leikhús nokkur augnablik. Í hvaða leikhús? Ég man það ekki. Það var svo bjart þar inni að ég varð niðurdreginn og fór út aftur, hálf dapur í bragði yfir því hvernig ofsafengin birtan skall á gylltu svalahandriðinu, yfir fölskum glampa stóru kristalsljósakrónunnar, yfir ljósaröðinni fremst á leiksviðinu, yfir dapurleikanum sem lagði af þessum óekta og skæra bjarma. Ég kom til Champs-Élysées þar sem kaffihúsatónleikarnir virtust vera logandi bál innan um laufskrúðið. Kastaníutrén, roðin gulum bjarma, litu út fyrir að vera máluð, eins og sjálflýsandi tré. Og rafmagnsperurnar, eins og geislandi og fölir mánar, eins og egg sem höfðu dottið niður úr tunglinu, eins og tröllauknar lifandi perlur, vörpuðu frá hvítum skeljum sínum svo dularfullri og konunglegri útgeislun að skítugar gasluktirnar og borðarnir, skreyttir lituðum glerjum, bliknuðu við hlið þeirra.

Ég nam staðar undir Sigurboganum til að virða fyrir mér breiðgötuna, þessa löngu, dásamlegu og stjörnum prýddu breiðgötu, sem lá til Parísar milli tveggja raða af götuljósum, og himintunglin! Himintunglin hátt yfir mér, óþekktu himintunglin sem hafði verið kastað af handahófi um víðáttur geimsins, þar sem þau mynda þessi skrýtnu merki sem vekja með okkur svo margar hugleiðingar og drauma.

Ég fór inn í Boulogne-skóg og var þar lengi, lengi. Óvenjulegur hrollur hríslaðist um mig, óvænt og kraftmikil tilfinning, hugaræsingur sem jaðraði við vitfirringu.

Ég gekk lengi, lengi. Síðan sneri ég við.

Hvað var klukkan þegar ég fór bakaleiðina aftur undir Sigurbogann? Ég veit það ekki. Borgin var í fastasvefni og ský, stór, svört ský, voru tekin að breiða rólega úr sér yfir himininn.

Í fyrsta sinn fannst mér eins og eitthvað skrýtið, eitthvað óvenjulegt, væri í aðsigi. Mér virtist sem nú væri orðið kalt í veðri, að loftið væri tekið að þykkna upp, og að nóttin, nóttin mín ástkæra, ylli mér þyngslum fyrir hjarta. Nú var breiðgatan yfirgefin. Einungis tveir lögregluþjónar voru á vappi kringum hestvagnastöðina og á akbrautinni, naumlega upplýstri af gasluktunum, sem virtust að því komnar að slokkna, var lest af grænmetiskerrum á leið til Les Hallesi. Þær fóru hægt yfir, hlaðnar gulrótum, næpum og kálhausum. Eklarnir dottuðu utan sjónmáls og hrossin gengu jöfnum, hljóðlausum skrefum í humátt á eftir næstu kerru fyrir framan sig á timburgötunni. Undir hverju götuljósi birtust gulræturnar rauðar, næpurnar hvítar, kálhausarnir grænir; þannig fóru þær hjá hver á eftir annarri, þessar kerrur rauðar sem eldur, hvítar sem silfur, grænar sem smaragðar. Ég elti þær og beygði síðan inn á Rue Royale og var aftur kominn á breiðstrætin. Enginn var á ferli, kaffihúsin voru öll búin að loka og einungis örfáir þaulsetugestir að flýta sér heim. Ég hafði aldrei séð París svo dauða, svo yfirgefna. Ég dró fram úrið mitt, klukkan var tvö.

Eitthvert afl rak mig áfram, einhver þörf fyrir að ganga. Ég hélt þess vegna áfram sem leið lá allt til Bastillunnar. Þar rann upp fyrir mér að ég hafði aldrei áður upplifað svo dimma nótt, því ég grillti jafnvel ekki júlísúlunaii né gyllta frelsisstyttuna á toppi hennar, sem var horfin inn í órjúfanlegt rökkrið. Skýjahvelfing, þykk eins og óendanleikinn sjálfur, hafði kaffært stjörnurnar og virtist vera að leggjast yfir jörðina í því skyni að tortíma henni.

Ég snerist á hæli. Nú var ekki nokkur sála nálægt mér. Á Place du Château-d’Eau var þó einn fylliraftur, sem rakst næstum utan í mig og gufaði síðan upp. Í nokkra stund gat ég heyrt ójafnt og skellandi fótatak hans. Ég hélt áfram för. Efst uppi á Faubourg Montmartre fór farþegavagn hjá, á leiðinni niður að Signu. Ég hóaði á hann. Ekilinn ansaði mér ekki. Nálægt rue Drouot var kona nokkur að sniglast um. „Kæri herra, heyrið þér aðeins“. Ég greikkaði sporið til að forða mér undan útréttri hönd hennar. Síðan ekki meir. Fyrir framan Vaudeville var tuskusafnari að róta í göturæsinu. Litla luktin hans var á hreyfingu rétt fyrir ofan götuna. Ég spurði hann: „Heyrðu félagi, hvað er klukkan?“

„Hvernig á ég að vita það? Ekki er ég með úr“, rumdi hann.

Þá varð ég þess skyndilega áskynja að búið var að slökkva á öllum götuljósunum. Ég veit að á þessum árstíma er slökkt á þeim snemma, fyrir dögun, í sparnaðarskyni. En það var enn langt, svo langt í sólarupprás!

„Best að fara til Halles“, sagði ég við sjálfan mig; „þar hlýtur þó að minnsta kosti að vera lífsmark.“

Ég lagði af stað, en sá ekki einu sinni til vegar. Mér miðaði hægt áfram, eins og ég væri í skógi, og henti reiður á götunum með því að telja þær.

Fyrir framan Crédit Lyonnais urraði hundur. Ég beygði inn í rue de Grammont og villtist. Ég ráfaði um uns ég bar kennsl á kauphöllina af rimlagirðingunni sem umlykur hana. Öll París svaf fastasvefni, djúpum og skelfilegum. Langt í burtu var þó einn hestvagn á ferð, einn einasti hestvagn, kannski sá sami og hafði farið fram hjá mér skömmu áður. Ég reyndi að hlaupa hann uppi, rennandi á hljóðið frá vagnhjólunum eftir yfirgefnum og svörtum, svörtum, helsvörtum strætunum.

Ég villtist aftur. Hvar var ég? Hvaða brjálæði var það að slökkva götuljósin svona snemma! Ekki einn einasti vegfarandi, ekki einn einasti nátthrafn, ekki einn einasti skuggabaldur, ekki einu sinni breimandi köttur. Ekkert.

Hvar var lögreglan eiginlega? „Ég hrópa, þá koma þeir“, sagði ég sjálfum mér. Ég hrópaði. Enginn svaraði.

Ég hrópaði hærra. Rödd mín fjaraði út án bergmáls, máttlítil, kæfð, kramin af nóttinni, þessari órjúfanlegu nótt.

Ég öskraði: „Hjálp! Hjálp! Hjálp!“

Örvæntingaróp mín fengu ekkert svar. Hvað var klukkan? Ég dró fram úrið mitt en var orðinn eldspýtnalaus. Ég hlustaði á létt tifið í litla gangverkinu af frámunalegri og furðulegri gleði. Það virtist vera lifandi. Mér fannst ég ekki jafn einsamall. Hvílík ráðgáta! Ég fór aftur að ganga um eins og blindur maður, þreifandi eftir veggjunum með stafnum mínum, og gaut augunum ótt og títt upp til himna, í þeirri von að nú færi að rofa til; en háloftin voru myrkvuð, alveg myrkvuð, myrkvaðri en borgin.

Hvað gæti klukkan verið? Mér fannst ég hafa gengið í heila eilífð því að fótleggir mínir voru farnir að kikna undan mér, ég var orðinn móður og hræðilega svangur.

Ég ákvað að hringja bjöllunni við fyrsta vagnhlið sem yrði á vegi mínum. Ég togaði í koparbjöllustrenginn og bjölluhljómurinn ómaði um hljóðbært húsið; en hann hljómaði, undarlegt nokk, eins og þetta hvella hljóð væri það eina í öllu þessu húsi.

Ég beið, ekkert svar, enginn opnaði hurðina. Ég hringdi aftur, ég beið lengur – ekkert.

Ég var orðinn hræddur! Ég hljóp að næsta mannabústað og hringdi tuttugu sinnum bjöllunni í dimmum ganginum þar sem húsvörðurinn hefði átt að vera sofandi. En hann vaknaði ekki – svo að ég hélt áfram að toga af öllu afli í allar bjöllur og hurðarhúna, sparkaði og barði með stafnum mínum og höndunum í þessar hurðir sem héldust þrákelnislega lokaðar.

Og skyndilega rann upp fyrir mér að ég var kominn til Les Halles. Markaðurinn var yfirgefinn, þar varð ekki vart við neitt hljóð, neina hreyfingu, neinn vagn, neina mannveru, neitt grænmeti eða blómvönd. Hann var tómur, hreyfingarlaus, yfirgefinn, dauður!

Skelfing greip mig. Hvað var um að vera? Ó, Guð minn góður! Hvað var eiginlega um að vera?

Ég lagði aftur af stað. En hvað var klukkan? Klukkan? Hver gæti sagt mér hvað klukkan væri? Bjöllurnar í öllum kirkjuturnum og minnismerkjum voru þagnaðar. Ég hugsaði: „Ég ætla að taka glerið af úrinu mínu og þreifa á vísunum með fingrunum“. Ég dró fram úrið mitt ... það tifaði ekki lengur ... það var hætt að ganga. Nú var ekkert, ekkert, ekki minnsti þytur í allri borginni, engin skíma, ekki minnsta hvísl í loftinu. Ekkert! Alls ekkert! Ekki einu sinni skröltið í vagni í fjarska – alls ekkert!

Ég var kominn að árbakkanum og jökulkulda lagði upp af fljótinu.

Skyldi Signa enn streyma?

Ég vildi vita það, ég fann tröppurnar, ég fór niður... ég heyrði ekki niðinn í straumnum undir brúarbogunum... fleiri þrep... síðan sandur... leðja... síðan vatn... ég dýfði hendinni í það... það streymdi... það streymdi... kalt... kalt... kalt... næstum frosið... næstum uppþornað... næstum dautt.

Og ég skildi mætavel að ég myndi aldrei finna kraftinn til að fara upp aftur... og að ég myndi deyja þarna... einnig ég, úr hungri – úr þreytu – og úr kulda.

14. júní 1887

i Les Halles: var áður fyrr aðal heildsölumarkaður Parísarborgar. Um hann skrifaði Émile Zola skáldsöguna Le Ventre de Paris (Kviður Parísar). Hann stóð í 1. hverfi en var rifinn árið 1971 og verslunarhverfið Forum des Halles byggt þar í staðinn.

ii Júlísúlan: la colonne de Juillet er stór minnisvarði á Bastillutorgi í París, reistur til minningar um byltinguna árið 1830. Á toppi hennar stendur Andi frelsisins, gyllt stytta af engil með kyndil í hönd. Súlan var vígð 1840.

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-58668436902413793542013-04-02T02:19:00.001-07:002013-04-02T02:19:01.951-07:00Hugmyndafræði for dummies

"In fact, the majority of people have a fairly sharp eye to

their own rights and interests, and most people feel uncomfortable at the

thought of belonging to a seriously unjust form of life. Either, then, they

must believe that these injustices are en route to being amended, or that they

are counterbalanced by greater benefits, or that they are inevitable, or that

they are not really injustices at all. It is part of the function of a dominant

ideology to inculcate such beliefs. It can do this either by falsifying social

reality, suppressing and excluding certain unwelcome features of it, or

suggesting that these features cannot be avoided."

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-82238064662275850012013-03-15T15:01:00.000-07:002013-03-15T19:19:24.159-07:00"... alt samneyti okkar við þá verður kvöl."Árið 1946 skrifaði Halldór Laxness grein um herstöðvarmálið, þar sem segir meðal annars:

"Sá maður sem svikur föðurland sitt hefur sjálfur kosið sér hin ystu myrkur, og það er ekki á annarra manna valdi að refsa honum né fyrirgefa. Hvað sem þessir sölumenn Íslands hafa sér til ágætis að öðru leyti, þá eru nöfn þeirra svartur blettur í sögu þjóðarinnar. Hvort þeir hafa afhent útlendingum Ísland til sjö hundruð ára eða hálfs sjöunda árs, þá er verknaður þeirra í eðli sínu samur. Þeir eru föðurlandssvikarar, saurugir og ósnertanlegir, alt samneyti okkar við þá verður kvöl."

Þegar Laxness er í þessum ham þá minnir hann mig dálítið á suma aðra höfunda sem ég hef mætur á, t.d. José Saramago, sem kallaði yfirstandandi fjármálakreppu efnahagslegan glæp gegn mannkyninu, eða John Berger, sem kallaði nýfrjálshyggjuna efnahagslegan fasisma. Alvöru menn, sem notuðu alvöru orð. Sjálfur er ég laus við þessa rosalegu ættjarðarást, sem svo lengi hvíldi svo þungt á íslenskum vinstrimönnum, en stundum leitar þessi setning á mig: "... alt samneyti okkar við þá verður kvöl." Ég man ekki hvenær ég fór fyrst að gera mér grein fyrir því og viðurkenna það fyrir sjálfum mér, en allt samneyti mitt við allstóran hluta samlanda minna er mér einmitt það: kvöl. Kannski er ég að hugsa um þetta akkúrat núna vegna þess að Framsóknarflokkurinn mælist nú allra flokka stærstur í skoðanakönnunum, brunandi á flóðbylgju ómengaðs popúlisma og mitt í þeim tíðindum að búið sé að rústa lífríki Lagarfljóts. Til hamingju, Plebba-Ísland, þú rokkar svo feitt. Árangur áfram, ekkert stopp.

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-2505847477836131661.post-12945531373451934542012-12-11T14:31:00.000-08:002013-03-15T15:02:28.700-07:00Heimsendir

Heimsendir lét sumsé ekki á sér kræla, eða ég held ekki. Er það gott eða slæmt?

Ég tók ekki einbeitta ákvörðun um að opna enn eina bloggsíðuna, heldur álpaðist til þess eftir smá fikt inni á Google+ (af öllum stöðum). Síðasta bloggsíðan mín var voða fín og búin til gagngert handa mér af vini mínum sem er gúrú. Á hana náði ég að skrifa eina færslu. Sjáum til hvað verður úr þessari. Ég býst við, að úr því hún er komin í loftið ætti ég að nota hana til einhvers konar miðlunar, einhvers konar samneytis við umheiminn.

Svona á meðan við bíðum eftir að heimurinn farist.

Karihttp://www.blogger.com/profile/15383799865185131418noreply@blogger.com0